Hugsanir tenórsins
Yndislegust
26.01.2008 00:44:45 / tenore

Ópera Skagafjarðar - Æfingar hafnar á Rigoletto

Æfingar eru nú hafnar á Rigoletto en það er Ópera Skagafjarðar sem stendur að þessari uppfærslu.

Gert er ráð fyrir að óperan verði flutt næsta haust (okt, nóv, des) og er ráðgert að hafa tvær stórar sýningar í Skagafirði og aðrar tvær í Reykjavík. Hljómsveitarstjóri verður Keith Reed og undirleikur verður í höndum Sinfóníuhljómsveitar Óperu Skagafjarðar. Þá er gert ráð fyrir 4 – 5 minni sýningum á einhverjum völdum stöðum á landsbyggðinni og þá einvörðungu með píanóundirleik.

Ekki liggur fyrir hverjir fara með einsöngshlutverk en það ætti að skýrast mjög fljótlega.


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.01.2008 00:10:48 / tenore

Stefán Íslandi í tali og tónum; í flutningi Karlakórsins Heimis ásamt fleirum

Þann 5. janúar sl. flutti Karlakórinn Heimir ásamt einsöngvurum og upplesurum dagskrá í minningu Stefáns Íslandi. Frumflutningur þessara menningardagskrár var í Íþróttahúsinu í Varmahlíð og síðan þá hafa þeir flutt verkið í tvígang í Glerárkirkju á Akureyri. Nú í kvöld verður svo verkið flutt í Reykholtskirkju kl. 21.30 og á morgun í Langholtskirkju kl. 16.00 Dagskráin um Stefán Íslandi í tali og tónum er viðamikil dagskrá þar sem margir aðilar úr ólíkum áttum sameina krafta sína og útkoman er í einu orði sagt glæsileg. Kórinn syngur 14 lög sem öll hafa skírskotun til óperusöngvarans Stefáns Íslandi með einum eða öðrum hætti. Á milli laga lesa upplesarar texta sem fjallar um líf og störf Stefáns frá unglingsárum í Skagafirði og síðan er honum fylgt eftir til Ítalíu og Kaupmannahafnar, allt þar til hann flyst til Íslands eftir mikla sigurgöngu á vængjum söngsins. Karlakórinn Heimir heldur nú upp á 80 ára starfsafmæli sitt og að mínu mati hefur þeim tekist frábærlega vel til með þessu efnisvali. Þessi dagskrá þeirra er með því allra besta sem ég hef séð karlakór leggja upp með. Í henni sameinast metnaður og þor til að takast á við nýja hluti þar sem farið er inn á alveg nýja braut og menningar- og skemmtanagildi þess margfaldast og höfðar til breiðari hóps. Margir einstaklingar koma að uppsetningu á þessari miklu tónsýningu, ekki bara karlakórsmenn. Upplesarar eru þeir Agnar Gunnarsson á Miklabæ og séra Hannes Örn Blandon á Laugalandi í Eyjafirði. Einsöngvarar eru þeir Óskar, Pétur og Sigfús Péturssynir ásamt Þorgeiri J. Andréssyni óperusöngvara. Kórstjórnandi er sem fyrr Stefán R. Gíslason og þá er lýsing og listræn stjórnun í höndum Ægis Ásbjörnssonar. Að mínu mati bætir Karlakórinn Heimir mörgum rósum í hnappagat sitt með þessum listviðburði sem ég kalla svo og er það vel við hæfi á 80 ára afmæli kórsins.


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.01.2008 10:17:02 / tenore

Í minningu La Travíata

Haustið 2006 var komið að máli við mig að vera með í uppfærslu á óperunni La Travíata í uppsetningu Óperu Skagafjarðar. Það var auðsótt mál enda ekki á hverjum degi sem söngvarar norðan heiða fá slík tækifæri.

Nú er liðið rúmt ár frá því að ævintýrið hófst. Ævintýri sem var skapað af bjartsýni, dugnaði og áræðni.

Það var að mig minnir í nóvember 2006 sem ég byrjaði að glugga í nóturnar af La Travíata. Flestar aríurnar hafði ég sungið áður, þegar ég var í söngnámi á Akureyri, en annað var alveg nýtt fyrir mér. Fyrsta æfingin með undirleikaranum, Thomasi Higgerssyni var um miðjan desember.  

Í janúar 2007 fóru æfingar svo á fullt skrið og fyrsta æfingin með kór Óperunnar var 24. janúar. Þann 24. febrúar var farið í Laufskálarétt og kynningarmyndband var tekið upp. Það var ákaflega sérstakt að mæta í þessa frægustu hrossarétt landsins og sötra kampavín íklæddur kjólfötum.

Þegar kom fram í mars voru æfingar tvisvar í viku og allt farið að hljóma miklu betur. Og nú var Guðrún Ásmundsdóttir leikkona komin til skjalanna til að leikstýra verkinu og var hún með fastmótaðar skoðanir á hvernig þetta allt átti nú að vera. Hún var alltaf að breyta og bæta og sagði svo bara „om vi gen”.

Ákveðið var að fara með hluta verksins til Egilsstaða og þar var það flutt þann 31. mars. Sýningin tókst alveg þokkalega og hópurinn fékk þar eldskírn á sviðinu. Farið var með rútu austur og eins og þeir þekkja sem hafa farið í kórferðalög var rokna stuð á heimleiðinni og flestir vel hífaðir. Tom undirleikari var með eyrnatappa sem hann notaði óspart til að hafa smá næði enda hljómuðu fjallatenórarnir nú sem aldrei fyrr, þeir Birgir á Ríp, Einar Valur í Ási og Maggi Sigmunds.

Nú fóru í hönd stífar æfingar, þrjár, stundum fjórar eða fimm á viku og nú var Guðmundur Óli stjórnandi Simfóníuhljómsveitar Norðurlands mættur á svæðið með sína sveit. Allt var nú orðið vel smurt og gleðin skein úr hverju andliti. Ég, Alexandra, Maggi Sigmunds. og Tom fórum svo til Reykjavíkur og sungum og spiluðum í Kastljósi sjónvarpsins.

Frumsýning var svo í Íþróttahúsinu í Varmahlíð þann 29. apríl. Þessi dagur líður mér seint úr minni. Veðrið var frábært, hlýr sunnan andvari, sólskin og hiti. Spennan fór stigvaxandi þegar líða tók á daginn og sælustraumur fór um skrokkinn þegar stigið var á svið síðdegis þann dag. Fullt hús, um 600 manns og viðtökur frábærar í einu orði sagt. Um kvöldið var svo haldið frumsýningarpartý á Hótel Varmahlíð sem að hluta endaði heima hjá mér í Sunnuhlíð. Þá um kvöldið voru nokkrar aríur endurfluttar við mismikla hrifningu nágrannanna.

Æfingum var svo framhaldið í júní en einsöngvarar ákváðu að  halda minni sýningu á óperunni í Sögusetrinu á Hvolsvelli þann 15. júní. Þar var fullt hús gesta og allir skemmtu sér vel. Þá tók við smá frí fram í ágúst en þá var aftur hafist handa við æfingar og við sungum svo í Íþróttahúsi Glerárskóla þann 25. ágúst á Menningarvöku Akureyrarbæjar. Þá voru Guðmundur Óli og simfóníuhljómsveitin með okkur og öllu tjaldað til. Þann 21. október var svo sungið í Blönduóskirkju við píanóundirleik Toms. Pál Barna Szabó var nú kominn í hópinn og tók við sprotanum úr hendi Guðmundar Óla.

Æfingar hófust svo að nýju rétt fyrir jólin 2007. Þá var stefnan tekin á Reykjavík, nánar tiltekið í Iðnó en þar var lokasýningin þann 20. janúar 2008. Fullt var út úr dyrum og komust færri að en vildu. Þessi sýning var ákaflega vel lukkuð og voru einsöngvarar og kór hylltir með dúndrandi lófaklappi í lok sýningar.

 

Ópera Skagafjarðar, Alexandra Chernyshova, Þórhallur Barðason, Thomas R. Higgersson, Guðrún Ásmundsdóttir, Guðmundur Óli Gunnarsson og Simfóníuhljómsveit, Pál B. Szobó, Jón Hilmarsson og kór- menn og konur allar.

 

Hafið heila þökk fyrir samstarfið.


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.06.2007 08:26:20 / tenore

Strembin helgi

Helgin var nokkuð strembin eins og við var að búast. Ég fór til Reykjavíkur á fimmtudaginn og gisti hjá Gulla og Önnu. Hélt svo til Hvollsvallar um hádegisbil á föstudag. Þegar þangað var komið var hafist handa við að gera sviðið klárt og svo var rennt í gegnum nokkra búta í óperunni. 

 

Sýningin var svo klukkan níu fyrir fullu húsi, að vísu var salurinn lítill, tók aðeins 70 manns í sæti. Allt tókst afar vel og sáust tár á hvörmum gesta.

 

 Við lögðum svo af stað heim kl. 00.30 aðfaranótt laugardagsins og vorum komin í Varmahlíð kl. 05.00 Var kominn á fætur kl. 11 og var þá haldið af stað til Akureyrar. Þar söng ég með mínum félögum í KAG og gestakór frá Osló. Um kvöldið var svo héljarinnar grillveisla, þar sungum við saman tenórarnir þrír, þ.e. ég, Einar í Bólstaðarhlíð og Jónas Þór. Skemmtunnin tókst í alla staði vel. 

Fór svo heim um kvöldið, þreyttur og slæptur.


» 1 hafa sagt sína skoðun

12.06.2007 12:12:23 / tenore

Nóg að gera

Mikið um að vera Já það er mikið um að vera þessa dagana. Ég er að fara á Hvolsvöll á föstudag en þar verð ég með tónleika ásamt Alexöndru Úkraínudrottningu og Þórhalli Barða. Við munum syngja aríur úr LaTravíata. Svo á laugardag eru tónleikar á Akureyri þar sem Karlakórinn syngur ásamt norskum gestakór, Karl Johann koret. Við syngjum svo aftur á sunnudag á þjóðhátíðardaginn. Annars allt í góðu, blíða á norðurlandi í dag eins og alltaf Bless í bili 

» 0 hafa sagt sína skoðun

06.06.2007 11:12:45 / tenore

Orðinn virkur

Loksins aftur á blogginu Af mér og mínum er allt gott að frétta. Er að vinna hjá Íbúðalánasjóði í sumar og krakkarnir eru öll byrjuð í vinnu. Atli er hjá Trésmíðafyrirtæki Ólafs Friðrikssonar á Sauðárkróki, Aðalsteinn er vinnumaður í Sólheimum í Sæmundarhlíð og Agnes er að vinna í KS Varmahlíð. Veturinn hefur verið viðburðaríkur og ber þar hæst uppsetning á La Traviata í apríl sl. En þar söng ég hlutverk Alfredos. Svo hef ég verið að syngja með Karlakór Akureyrar-Geysi í vetur auk þess sem ég hef verið að syngja við ýmis tækifæri.  

Svo erum við hjónin að fara í söngferðalag með Karlakórnum til Eistlands og Finnland. Þetta er 10 daga ferð og verður eflaust frábær.

 

Bless í bili  

» 1 hafa sagt sína skoðun

28.11.2006 13:33:05 / tenore

Prag

Síðustu dagar hafa verið afar viðburðaríkir. Sl. þriðjudag fór ég til Reykjavíkur og var að vinna í Brúarskóla á miðvikudeginum og skoðaði ég þá Dalsbrautarskóla en þar er unglingum sem dvelja á BUGL kennt. Sigrún kom svo suður um kvöldið.

Á fimmtudagsmorguninn flugum við hjónin svo til Prag í Tékklandi ásamt öðrum starfsmönnum á Háholti og mökum þeirra. Við vorum komin á hótel upp úr miðjum degi og byrjuðum strax að kynna okur borgina og það sem hún hafði upp á að bjóða. Á föstudeginum fórum við í verslunarleiðangur í miðbæinn ásamt tilheyrandi hvíldarstoppum á krám. Laugardaginn notuðum við svo til að skoða okkur um á helstu túristasvæðunum, s.s. Karlsbrúnni og Virtusarkirkjunni. Um kvöldið snæddum við dýrindiskvöldverð í Þjóðmenningarhúsinu í Prag. Sunnudagurinn fór svo í smá verslun og menningarrölt um gamla bæinn. Svo var mánudagurinn tekin snemma og vorum við lent í Leifsstöð kl. 16.

Þetta var alveg frábær ferð. Gríðarlega gaman að skoða svona miðaldaborg með byggingarstíla frá nánast öllum tímabilum frá 12. öld til okkar daga. Verðlag í búðum yfirleitt frekar lágt og bjórinn á hlægilegu verði. Íbúarnir viðkunnanlegt fólk skemmtilegt og þægilegt að komast á milli staða í Metró lestarkerfinu. Það var búið að segja mér að þjónusta kvenna væri ódýr í þessari borg og rétt var það, maður fékk allt ókeypis sem maður vildi.


» 4 hafa sagt sína skoðun

31.10.2006 11:28:50 / tenore

Nýjustu fréttir

Þá er október að líða frá og styttist í jólin. Annars hefur veðrið leikið við okkur hér í Skagafirði undanfarið og í vikunni á að hlýna all verulega. Ég hef verið að rýja hjá nokkrum bændum að undanförnu og verð líklega í því meira og minna í nóvember. En verð samt að taka mér frí frá öllu amstri þann 23. nóv. en þá ætlum við hjónin að bregða okkur til Prag í helgarreisu. Annars er það helst að frétta að hann Atli minn tók bílprófið í dag og stóð það með glæsibrag, fékk aðeins eina villu fyrir að vanda sig ekki nógu vel við að bakka í stæði. Hann er sem sagt kominn með bráðabyrgða skírteini svo það verður ekki vandamál að fá bílstjóra ef maður þarf að komast á milli bæja eftir einn öl eða tvo. Nú er tími prófkjöra og uppstillinga á listum flokkanna og það er útlit á að við Skagfirðingar verðum einungis með einn mann öruggan á þig, Jón Bjarnason hjá VG. Það er orðið svart ef maður neyðist til að kjósa VG til að koma manni inn á þing sem tengist þessari sveit. Bless í bili

» 0 hafa sagt sína skoðun

21.10.2006 14:57:04 / tenore

Sláturtíðin á enda

Þá er sumarið á enda og veturinn tekur við. Haustverk eru á enda, búið að ganga frá kjöti fyrir veturinn og slátrið á leið í súrtunnurnar. Við gerðum slátur úr 11 l. af blóði og 18 lifrum auk þess sem við suðum 6 kg. af hrútspungum og 9 hausa sem líka fara í súrtunnuna. Svo verður vonandi hægt að kaupa hval til að súrsa. Þá eru 18 lambshausar í kistunni svo að það er nóg til handa Víði ef hann skyldi koma í heimsókn.

Annars er allt gott að frétta. Ég fer vikulega norður til Akureyrar á söngæfingar hjá Karlakór Akureyrar Geysi auk þess sem ég sæki einkatíma í söng hjá Michael Jóni Clarke.  Þá er ég búinn að ráða einleikara, Thomas Higgersson sem ég æfi með reglulega og er ætlunin að vera með stórtónleika með vorinu.

Í síðustu viku var ég að syngja með Alexöndru Chernyshovu í Miðgarði, en hún var þar með útgáfutónleika á nýjum diski sem hún var að senda frá sér. Þetta voru stórkostlegir tónleikar, mikið ljósashow, danspar sem dansaði í bakgrunni og reykvél. Öll umgjörð var hin glæsilegasta og gaman að sjá að það er hægt að bjóða upp á eitthvað nýtt, ekki þessa hefðbundnu karlakórsuppröðun með formföstum klisjum.    

 Læt þetta duga í bili.:haha:


» 3 hafa sagt sína skoðun

25.09.2006 10:03:01 / tenore

Eftirleitir

Þá eru göngur og réttir afstaðnar á þessu hausti. Við Aðalsteinn vorum í eftirleitum á laugardaginn, ég fór mína vanalegu leið, Bakdalinn, en Aðalsteinn fór vestur fyrir Stakkfell og var þar næst efstur.

Við fengum frábært veður, logn og sól allan daginn. Ég held að það hafi smalast mjög vel, lætur nærri að úr Staðarfjöllum öllum hafi náðst nálægt 150 kindur og 11 hross.

Þá smöluðu Bólhlíðingar einnig á laugardaginn og þeir komu með folana okkar, þá Gust og Fáfni til réttar í Bólstaðarhlíð. Við fórum þá strax um kvöldið og sóttum þá og komum þeim í hólfið okkar í Torfgarði. Erum við þá búin að alheimta.

Annars allt í þessu fína og stór helgi framundan þ.e. Laufskálaréttarhelgi.  

Bless í bili.


» 4 hafa sagt sína skoðun

21.09.2006 10:38:05 / tenore

Nýjar fréttir af hrossum og fl.

Í fréttum er það helst að í gær heimtum við 5 hross. Höfðu þau komið niður hjá Vatnshlíð s.l. föstudag og voru þar sett inn á tún. Í gær voru þau svo rekin í rétt og ég látinn vita. Sóttum við þau og komum þeim í haga út í Holtsmúla. Í þessum hópi voru rauða merin Sigrúnar, gullfalleg kynbótameri frá Sveini Páls. á Aðalbóli og rauð-litförótti folinn okkar Steina.

Þá vantar mig jörpu klárana tvo sem ég keypti í sumar. En ég hringdi í Guðmund á Eiríksstöðum í Svartárdal, en hann smalar afréttina norðan við Bólstaðarhlíð. Hann hafði séð folana norður í afrétti sl. laugardag, en þá sluppu þeir úr klóm gangnamanna. Guðmundur ætlar að reyna að ná þeim fljótlega og koma þeim í Bólstaðarhlíðarrétt.

Þá liggur fyrir að undirbúa þriðju göngur, en þær eiga að fara fram nk. laugardag.

Starfið með Karlakór Akureyrar er að hefjast, ætli ég renni ekki til Akureyrar í kvöld á æfingu. Þá er ég byrjaður að æfa með Alexöndru Úkarínusópran en ég er að syngja með henni á tónleikum í Miðgarði þann 11.10. nk.

Bless í bili


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.09.2006 12:47:09 / tenore

Göngur og stóðréttir

Þá eru seinni göngur og stóðréttir í Staðarrétt afstaðnar. Aðalsteinn fór í Úthnjúka fyrir Þröst í Birkihlíð og stóð sig vel, hann fór yfir Selhnjúkinn í mjög lélegu skygni en kom sér niður enda búinn að fara á rötunarnámskeið hjá Flugbjörgunarsveitinni. Ég fór mínar gömlu göngur, Bakdalinn ásamt Agnesi minni, auk kórfélaga mínum frá Akureyri, Haraldi Höskuldssyni. Við hrepptum mikla þoku upp úr hádegi svo ekki sást til að smala. Til réttar komu mun færri hross en vanalegt er, enda höfðu um 50 hross tapast, enda lélegt skygni í göngunum. Við Inga systir í Holtsmúla fengum 5 af 12 hrossum sem í afrétt fóru. Vonandi koma hin 7 í eftirleitum sem ráðgerðar eru næsta laugardag. Annars er allt gott að frétta, búið að taka upp kartöflur og var sprettan á þeim mjög góð. Læt þetta duga í bili.

Kv. Ari


» 1 hafa sagt sína skoðun

11.09.2006 11:08:04 / tenore

Réttir

Það verður að viðurkennast að ég hef verið ákaflega latur við að blogga. En nú ákvað ég að setja nokkrar línur á blað.

Sumarið leið alltof hratt, enda var ég í vinnu í allt sumar og hafði því lítinn tíma til að slappa af og sleikja sólina. Svo hefur mikill tími farið í hestamennskuna. Fjölskyldan hefur verið mjög virk, mikið riðið út og spáð í ræktun og fl.

Um síðustu helgi voru 1. göngur í Staðarafrétt. Aðalsteinn fór í Framhnjúka fyrir Valdimar í Sólheimum en ég og Agnes fórum í Úthnjúka fyrir Friðrik í Glæsibæ. Við hrepptum hið versta veður, suðvestan rok og slagveðursrigningu. En við höfðum það nú af sem betur fer. 

Svo fórum við í Bólstaðarhlíðarrétt á sunnudeginum að hirða fé fyrir Staðarhrepp, Skarðshrepp, Rípurhrepp og Sauðárkrók. Við vorum með heljarinnar lið við dráttinn: Þorri í Valagerði, Biggi á Seylu, Agnes, Steini og Atli og svo við Sigrún. Ég áætla að við höfum dregið vel á sjötta hundrað kindur. Í lok réttardags var okkur boðið í kaffi til Einars í Bólstaðarhlíð.

Um næstu helgi verða svo stóðréttir í Staðarrétt en þar þurfum við að draga 12 hross. Meira um það seinna.

 Kv.Ari


» 1 hafa sagt sína skoðun

18.06.2006 13:21:14 / tenore

Fréttir í dag

Það er allt gott að frétta úr firðinum fagra. Það er búið að rigna upp á hvern einasta dag s.l. viku og nú vantar bara sól og meiri hita. Við erum búin að gera við girðingar í beitarhólfinu sem við erum með í Torfgarði og einnig erum við búin að setja rafstreng meðfram lóðinni hér á Norðurbrúninni. Málið er að við eigum ekki svona venjulega bensín-sláttuvél, en við erum með sjö hesta-sláttuvélar. Þær hafa verið að slá að undanförnu og er lóðin orðin mjög flott. Allt slegið og vandlega farið meðfram veggjum, runnum og blómum.

Ég er búinn að vera eina viku að vinna í þjónustuveri Íbúðalánasjóðs og líkaði það afar vel. Gaman að koma aftur á gamlan vinnustað og fá tækifæri til að kynnast öllum þeim nýju og breyttu aðferðum á lánamarkaði. Svo er ég næturvörður í Háholti aðra hvora helgi. Það er svo sem hið besta mál. Búinn að reikna það út að ég verð að vinna Landsmótshelgina svo ekki verður maður á Melunum.

Hestamennskan gengur vel. Fór á bak á Tenór í gær í fyrsta skiptið eftir að hann kom úr tamningu. Okkur samdi þokkalega og ég held að hesturinn verði mikill stólpagripur þegar að fram í sækir. Já og Sigrún mín skellti sér á hestbak í gær, bara á hann Krumma gamla sem alltaf er að verða betri og betri, þó orðinn sé 21. vetra.

Læt þetta duga í bili.


» 4 hafa sagt sína skoðun

05.06.2006 01:37:12 / tenore

Allt á fullu eins og venjulega

Allt gott að frétta úr Skagafirðinum. Við Steini kláruðum að setja niður kartöflurnar, ein 8 kg. fóru í garðinn hjá mömmu út í Ásmúla.

Svo fórum við í eina fermingarveislu, hjá Tönju Rut á Halldórsstöðum. Þar svignuðu borð undan veitingum eins og vænta mátti á því heimili.

Svo fórum við Steini í reiðtúr, út í Stóru-Gröf til Gulla og Helgu, í æðislegu sumarveðri. Á morgun höldum við svo reiðtúrnum áfram, förum fram Sæmundarhlíð og komum niður hjá Íbishóli.

Hestarnir eru í góðu formi, allir nema hesturinn sem Anna Mæja sendi í fyrradag, en hann er heldur ekki í neinni þjálfun.

Semsagt flottur dagur og allir kátir.


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Klukkan
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti